Anna er 41 árs og hefur æft Absolute training frá því í maí 2019. Hún byrjaði hjá Elfu í Ögurhvarfi en færði sig svo yfir til Söndru í Smáralindina í September sama ár. Anna hefur einnig tekið fjarþjálfun hjá Absolute Training á Covid tímum og segir að fjarþjálfunin sé mjög fín og appið frábært, en það sé ekkert sem toppar að mæta í salinn og æfa með öðrum.
Anna segir að uppáhalds æfingin hennar sé burpees. ,,Þegar ég byrjaði í Absolute Training hafði ég aldrei gert burpee og fyrsta mánuðinn var ég ekkert mjög hrifin af æfingunni. Þegar ég var að klára annan mánuðinn minn hjá Elfu áttu ég 40 ára afmæli og fékk afmælisæfingu þar sem ég átti að leiða hópinn og gera 40 burpees og eftir það hef ég elskað burpees”.
Eins og flestir sem þekkja Absolute Training vita er markmiðasetning mjög stór hluti af námskeiðinu og því ákvað ég að spyrja Önnu út í hennar markmið og hvernig þau hafa gengið þessi tvö ár. ,,Ég set mér oftast markmið tengd heilsunni, bæði andlegu og líkamlegu. Síðasta sumar voru markmiðin tengd hlaupi þar sem ég ætlaði að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu og fannst það mjög skemmtilegt”. Anna byrjaði á að setja sér markmið að geta hlaupið 1 km og lengdi svo vegalengdina. Sökum Covid var svo ekkert Reykjavíkur maraþon en Anna lét það ekki stoppa sig og endaði sumarið á að hlaupa 10 km í sínu eigin maraþoni. Anna hefur einnig sett sér markmið tengt sinni uppáhalds æfingu ,,ég setti mér líka markmið í apríl í fyrra að gera 100 burpees á dag allann mánuðinn. Það var hrikalega erfitt en ég hélt út og kláraði það, fannst það magnað”.
Þegar ég spyr Önnu hvort það séu aðrar æfingar í andlega hlutanum sem eru í uppáhaldi segir hún að æfingarnar séu flestar frábærar og nýtist henni vel. ,,Umræðan um venjur og rútínu, þar náði ég að setja mér góðar venjur sem ég var aðeins í vandræðum með. Taka vítavín alla daga, búa um rúmið og hafa bara einn nammidag. Það sem ég tengdi svo rosalega við var elsku Rútan og lífshjólið sem er líka skemmtilegt”.
Að lokum segir Anna ,,ég mæli með Absolute Training fyrir alla, þetta er svo fjölbreytt og skemmtilegt. Alveg sama á hvaða aldri eða líkamlega formi þú ert”.
Viðtal og myndir eftir Lilju Gísla @liljagisla
Uppáhalds umræðu efni Andreu í andlega hlutanum eru andleg skoðun og markmiða setning og hún segist hafa sett sér allskonar markmið ,,ég set mér markmið vikulega og mánaðarlega. Markmiðin eru bæði stór og smá allt frá því til dæmis að búa um rúmið upp í að kaupa íbúð”. Eitt af markmiðunum sem Andrea hefur náð á námskeiðunum er einmitt
,,Absolute training hefur hjálpað mér að ná markmiðum mínum andlega og líkamlega á hinum ýmsu stöðum í lífinu sem ég hefði aldrei haft trú á. Ég er afar þakklát og stoltur iðkandi Absolute training og myndi mæla með af öllu hjarta” segir Andrea um það sem Absolute training hefur gert fyrir hana. Hún segir að það besta við prógrammið sé stemmingin og einlægnin á námskeiðunum. Andrea hefur í Covid verið dugleg að taka þátt í fjarþjálfun Absolute training og segir ,,í covid er þetta alveg súper en ég elska að mæta á æfingu í góðum hópi svo ég hef saknað þess. Fjarþjálfunin er fullkomin ef maður kemst ekki og er á ferð og flugi eða eins og staðan er í heiminum í dag”.
Að lokum segir Andrea ,, Ef ég ætti að lýsa Absolute Training í einni setningu væri það: Lífslest sem hjálpar manni að ná árangri andlega og líkamlega. Að lokum vil ég bara segja að ég persónulega mæli af öllu hjarta með að allir prófi Absolute Training. Þetta lestarkerfi, eins og ég vil kalla það, kennir manni svo ótrúlega margt stórt og smátt sem hjálpar fólki við að ná árangri líflega, andlega og líkamlega!”
Takk Andrea fyrir að vera Team Absolute Training og takk fyrir falleg orð.
Viðtal og myndir eftir Lilju Gísla @liljagisla
]]>
Uppáhalds umfjöllunarefni Valentínu í andlegapartinum eru tvö, ótti og mistök. ,,Sandra talaði um ótta, hvernig það er ekki gott að láta óttan stjórna sér og reyna að gera allt til að yfirstíga hann. Þessi partur hjálpaði mér helling eftir umræður og pælingar og ég komst yfir allskonar hindranir sem ég átti erfitt með að gera. Einn af mínum óttum var að labba um á bikiníi í sundi og í útlöndum, með verkfærum sem Sandra gaf okkur þá náði ég að yfirstíga þennan ótta, þvílíka frelsið”. Um mistökin hefur Valentína þetta að segja ,,hvernig maður getur tekið það jákvæða út úr mistökunum sem maður hefur gert til að koma í veg fyrir að gera þau aftur. Ég er að reka fyrirtæki og hef gert all nokkur mistök, eina sem maður getur gert í slíkum aðstæðum er að læra af reynslunni og halda áfram. Sandra er stór gullkista full af frábærum punktum hvað varðar andlega heilsu og hvernig við getum notað einföldustu leiðir til að verða enn betri. Ég hefði aldrei getað trúað því hversu gott væri að rækta líkama og sál á sama tíma”.
Þegar ég spyr Valentínu hvað Absolute training hafi gert fyrir hana segir hún það vera svo margt. ,,Absolute training hefur gert mig að sterkari konu sem er óhrædd að taka nýjum áskorunum því ég veit að ég get tæklað þær. Það hefur fyllt mig af sjálfstrausti hvað varðar hreyfingu og að maður þarf ekki að líta ákveðið út til þess að geta gert æfingarnar. Einnig hef ég kynntst fullt af frábærum konum sem er gaman að æfa með. Ég fann gleðina að byrja að æfa aftur og það er skemmtilegt en ekki kvöð”. Það besta við námskeiðið segir Valentína vera hvað allir séu velkomnir alveg sama í hvaða formi fólk er og hver og einn fær rými til þess að gera hlutina og æfingarnar á sínum hraða. ,,Það eru engir fitufordómar og bara endalaust pepp og gleði. Svo bara Sandra, hún er algjör peppari, yndisleg, jákvæð og hjartahlý kona sem tekur alltaf á móti manni, frábær þjálfari”.
Valentína hefur ekki prófað fjarþjálfun Absolute training en ætlar sér að gera það. Hún segir að hún sjálf sé ekki spennt fyrir því að æfa heima en sökum aðstæðna í samfélaginu sé það það eina rétta í stöðunni. Hún segir að það hjálpi alveg mikið til að sjá hversu vel upp sett námskeiðið er í fjarþjálfuninni og hversu falleg myndböndin með æfingunum séu.
Valentína segir að besta ákvörðun sem hún hafi tekið hafi verið að skrá sig til leiks í Absolute Training í Janúar 2019.
Viðtal og myndir eftir Lilju Gísla @liljagisla
]]>
Elín er 36 ára og hefur æft hjá Láru í Kringlunni meira og minna síðan í Júní 2019. Elín kom fyrst í prufutíma hjá Láru í maí 2019 og ákvað í kjölfarið að slá til og hefur ekki snúið við síðan. Ég fékk aðeins að spyrja Elínu um hennar reynslu af Absolute Training.
Elín á erfitt með að velja eina uppáhalds æfingu. ,,Góð spurning. Þriðjudagsæfingarnar eru oft alhliða styrktaræfingar og ótrúlega gott að byrja vikuna á þeim. En svo eru góðar paraæfingar virkilega skemmtilegar.”
Hvers vegna paraæfingar? ,,Sennilega vegna þess að partnerinn hjálpar manni að komast örlítið lengra og svo eru þær líka á föstudögum og það er gott að klára vikuna með góðum krafti.” Elín segir að eftirminnilegustu æfingarnar séu líklega spilastokkaæfingar ,,þá erum við nokkrar saman að klára æfingarnar og peppa hverja aðra áfram. Ef þið hafið áhuga á að prófa spilastokkaæfingu mæli ég með því að kíkja á Instagrammið okkar (@the_absolute_training) en þar er hugmynd af slíkri æfingu.
Þegar við smellum okkur yfir í uppáhalds umfjöllunar efni í andlega þættinum segir Elín ,,þau hafa verið svo mörg, ekkert eitt sem stendur uppúr. Það sem hefur líklega mest áhrif er að segja sínar hugleiðingar upphátt, eða þær sem maður treystir sér til, og heyra annarra. Það hefur oftar en ekki víkkað sjóndeildarhringinn og hjálpað manni sjálfum”.
Eins og aðrir sem æfa hjá Absolute Training hefur Elín fengið góða þjálfun í markmiðasetningu. ,,Ég hef sett mér allskonar markmið meðal annars sem snúa að mataræði, svefni, hreyfingu og einkalífi. Sem dæmi að vera komin í ró og upp í rúm kl. 23:00 fjóra daga vikunnar , hringja í gamlar vinkonur og minnka skjátíma”. Hvaða ráð myndir þú gefa fólki sem er að byrja að setja sér markmið og langar að koma því í sínar vikulegu venjur? ,,Úff það er örugglega eitthvað. Galdurinn er að hafa markmiðin blönduð og hafa inn á milli markmið sem eru geranleg. Það er nefnilega fátt leiðinlegra en að finnast maður aldrei ná markmiðum. Sú tilfinning dregur virkilega úr manni. Hitt er að finna sér markmið sem eru aðlaðandi. Ég held að það sé mikilvægasta elementið í SMART formúlunni. Ef markmið er ekki aðlaðandi þá er svo auðveld að hundsa það, gleyma því eða bara ekki taka það alvarlega. Ef þú setur þér markmið að borða brokkolí þrjá daga í viku en þér finnst það bara alls ekki gott þá ertu aldrei að fara að gera það”. Elín segist vera að vinna í nokkrum markmiðum þessa dagana. ,,Í tengslum við hreyfingu þá langar mig að ná tökum á hlaupum og ná samfelldum 5 kílómetrum. Ég er reyndar að berjast við beinhimnubólgu þannig að ég þarf aðeins að meta hvernig ég næ því markmiði. Í einkalífinu er ég atvinnulaus en er að vinna að því að búa mér til tækifæri. Þannig að í einkalífinu er eitt stórt markmið í pípunum”.
Áður en ég sleppi Elínu langar mig að vita hvað Absolute Training hefur gert fyrir hana. ,,Ég hef séð það svart á hvítu að ég get gert miklu meira í tengslum við hreyfingu en ég hélt ég gæti. Mér hefur til dæmis tekist að gera góða burpee, ótrúlegt en satt! En það þýðir ekki að mér finnist þær skemmtilegar. Svo er það þetta með að mæta þó maður sé í takmörkuðu stuðu. Maður tapar aldrei á æfingu og svo hefur verið svo góður andi í hópnum. Ég allavega upplifi mig hluta af heild og þykir vænt um samheldnina í hópnum”. “Ef ég ætti að lýsa upplifun minni af Absolute Training í einni setningu myndi ég segja: Kröftugar æfingar í góðum hópi sem stefnir að alhliða sjálfsstyrkingu, líkamlegum og andlegum”.
Viðtal og myndir eftir Lilju Gísla @liljagisla
Lilja byrjaði að æfa í Febrúar 2019 eftir að hafa komið í prufutíma í Janúar sama ár. Hún æfði frá febrúar og út nóvember 2019 en tók þá pásu í desember og janúar og byrjaði svo aftur að æfa í lok febrúar 2020. ,,Ég fann bara að þessi rúmlega tveggja mánaða pása var nóg og ég saknaði þess að mæta og huga að andlegri og líkamlegri heilsu.”
En hver er þín uppáhalds æfing? ,,Uppáhalds æfingin mín er líklega hnébeygjur á jafnvægisbolta og ég elska pýramída æfingar, ótrúlegt en satt. Ég á líka í miklu love/hate sambandi við Assault bike og það er eiginlega ein af mínum uppáhalds æfingum þó hún sé á sama tíma ein sú lang erfiðasta”.
Hvaða markmið hefur þú sett þér og hvernig hafa þau gengið? ,,Ég hef sett mér ótrúlega mikið af markmiðum, misgáfulegum vissulega en hef þó náð ótrúlegustu markmiðum. Ég hef t.d. klárað mitt fyrsta lag, útskrifast sem förðunarfræðingur og náð að koma æfingum og góðum svefn í rútínu. Markmið sem hafa gengið verr eru t.d. að ná að hlaupa ákveðnar vegalengdir og missa ákveðinn kílóa fjölda. Ég hef komist að því að hlaup henta mér alls ekki og það truflar ekki æfingar mínar hjá Absolute, ég get alltaf fengið að hjóla eða róa í staðinn.”
Hvert er þitt uppáhalds umfjöllunarefni í andlega þættinum? ,,Uppáhalds æfingin mín í andlega þættinum fyrir utan bara markmiðasetningu er Bucketlistinn. Við gerðum bucketlista og ég setti hluti á þann lista sem ég átti engan vegin von á að ég myndi afreka í nánustu framtíð. Á þessum lista var meðal annars að eignast mína eigin íbúð sem gerðist svo í lok síðasta árs, alveg mjög óvænt. Markmið eru orðin svo stór hluti af lífi mínu eftir að ég kynntist Absolute Training að ég set mér markmið á hverjum einasta degi.”
Hvað hefur Absolute training gert fyrir þig? ,,Absolute training hefur gefið mér svo mikið af verkfærum til þess að nota við að setja mér markmið og huga að minni andlegu heilsu. Einnig hefur það hjálpað mér við að finnast gaman að hreyfa mig og líða vel á æfingum og í líkamsræktarstöðvum. Það er ómetanlegt að finna stuðning þjálfaranna og hópsins á æfingum og ég hef eignast fullt af yndislegum vinkonum á þessu ári sem ég hef kynnst hjá Absolute training”.
Upplifun þín á Absolute Training í einni setningu: ,,Frábærir þjálfarar sem hjálpa mér að ná mínum markmiðum í andlegri og líkamlegri heilsu og aðstoða mig við að gera æfingarnar svo þær henti mér og minni getu”.
Lilja Gísla er með Instagram reikning @liljagisla og heldur úti bloggi á Platonic.is