4 vikna Absolute Training Booty prógram
Á þessu prógrammi færðu 3 æfingar í viku sem eru sérstaklega með það í huga að byggja upp rassvöðvana. Æfingarnar skiptast þannig upp að þú tekur léttari og einangraðari æfingar einn dag í viku og kröftugri æfingar hina tvo dagana.
Þetta prógram mun móta og styrkja stærstu vöðva líkamans - rassvöðvana.
Það getur verið virkilega áhrifamikið að einblína á ákveðinn vöðvahóp í nokkrar vikur og byggja upp góðan grunnstyrk.
Þú getur stundað þetta prógram eitt og sér eða með öðrum æfingum. Alveg eins og þér hentar.