4 vikna Absolute Training Core prógram
Á þessu prógrammi færðu 3 æfingar í viku sem eru sérstaklega með það í huga að byggja upp kvið- og bakvöðva. Æfingarnar eru um 30 mínútur í framkvæmd og henta sérstaklega vel með öðrum æfingaprógrömmum, svo sem hlaupaprógrammi eða annarri hreyfingu.
Þetta prógram mun móta og styrkja miðjusvæði líkamans.
Það getur verið virkilega áhrifamikið að einblína á ákveðinn vöðvahóp í nokkrar vikur og byggja upp góðan grunnstyrk.
Þú getur stundað þetta prógram eitt og sér eða með öðrum æfingum. Alveg eins og þér hentar.